Arna Lind's profileArna og Sigurður living ...PhotosBlogLists Tools Help

Arna Lind Sigurðardóttir

Occupation
April 02

Engar myndir!!!!

Ætlaði að fara að setja inn myndir eins og ég sagði en þá er búið að breyta þessu og það þarf að uploada hverri einustu mynd fyrir sig sem er algjör viðbjóður. Ég ætlaði að velja nokkrar en þá virkaði þetta ekki svo ég nenni ekki að standa í veseni núna. Ég verð að reyna að finna einhverja aðra leið til þess að gera þetta.

Það verður því einhver seinkun á myndunum... sorry!!!!

Myndir frá San Francisco

Jæja þessi síða er búin að vera officially dauð síðan í nóvember. Ég komst að því fyrir áramót að mér finnst alveg hundleiðinlegt að blogga plús það að alltaf þegar ég heyrði í einhverjum og var að segja fréttir fékk ég svarið "Já einmitt ég las það á blogginu".... Óþolandi því þá hef ég ekkert að segja við þá sem ég tala við þannig að ég ákvað eiginlega bara að hætta að blogga. Finnst miklu skemmtilegra að heyra í fólki og þá líka hefur fólk fyrir því að hafa samband við mann. (Einhverjir allavega).
Hvað um það þá hef ég verið beðin um að setja inn myndir frá San Francisco svo ég ætla að gera það því ég nenni ekki að senda öllum.
Ég er s.s. ekki byrjuð að blogga aftur ég er bara að setja inn myndir. Þannig að þeir sem vilja heyra fréttir af okkur hérna úr sólinni í Ithaca verða bara að hafa samband í gegnum email, msn eða skype.

Hafið það gott þangað til næst,
kveðja,
Arna
December 09

Nýjar myndir

Var að setja inn nokkrar nýjar myndir
December 06

Jæja hvernig væri að fara að skrifa eitthvað

Já maður er búinn að vera alveg hrikalega lélegur að update-a síðuna hérna. Það er að verða mánuður síðan ég kom heim og hef bara ekkert skrifað síðan þá. Það er nú ekki mikið að segja, get ekki sagt ég hafi gert mikið hérna.
Er samt búin að taka eitt próf. Iðnaðartölfræði 2 sem var heimapróf um helgina. Skilaði því í gær. Það gekk nú bara fínt en ég vil samt ekkert vera að segja of mikið það kemur bara í ljós.
Ég fór á Typpatal með Hjördísi fyrir einhverju síðan, hún var svo elskuleg að bjóða mér með sér á frumsýninguna. Þetta var nú bara skemmtilegra en ég bjóst við alveg hægt að hlægja að þessu.
Látum okkur sjá er ég búin að gera eitthvað fleira? Fór að djamma helgina eftir að ég kom. Byrjaði í stelpupartýi heima hjá Hjördísi, fór svo í eitthvað útgáfupartý hjá Senu þar sem allt "fína og fræga fólkið" var. Það fannst mér nú ekkert sérstakt, stoppaði samt aðeins til að drekka því það var frítt á barnum . Eftir það fór ég með Hjálmari á Nasa en þar voru Paparnir að spila og það var sko gaman. Enda enduðum við á allt of löngu djammi.... en nóg um það.
Já ég fór líka á Mörgæsamyndina og hún er alveg frábær, mæli með henni.
Núna á ég s.s. að vera að rifja upp sumarverkefnið mitt sem ég gerði fyrir Orkuveituna í sumar því ég er að fara að kynna það á morgun fyrir heimamönnum. Þannig að ætli það sé ekki best að fara að halda áfram að rifja upp því ég ætla að fara á æfingu á eftir. Við Þórey erum farnar að æfa saman og það er rosa fínt. Miklu skemmtilegra að fara með einhverjum heldur en einn. Við líka drögum hvor aðra áfram sem er ekki verra.
Svo eru bara 5 dagar í að Sigurður komi heim .

Jæja gott í bili, ætla svo að fara að setja inn nýjar myndir. Var að setja þær inn á tölvuna svo ég fer að skella þeim á netið.
kveðja, Arna
November 13

Leiðrétting!!!

Ég vil koma þeim misskilningi á framfæri að það var ekki ég sem ákvað nafnið á eftirréttinum "Desserten som er bedre en sex". Þetta kemur alfarið frá dönum svo ég geri ráð fyrir að danskir karlmenn séu svona lélegir í rúminu, þetta á a.m.k. ekki við um íslenska karlmenn og hvað þá minn mann.

Yfir og út,
Arna
 
Photo 1 of 44