Arna님의 프로필Arna og Sigurður living ...사진블로그리스트 도구 도움말

블로그


    4월 2일

    Engar myndir!!!!

    Ætlaði að fara að setja inn myndir eins og ég sagði en þá er búið að breyta þessu og það þarf að uploada hverri einustu mynd fyrir sig sem er algjör viðbjóður. Ég ætlaði að velja nokkrar en þá virkaði þetta ekki svo ég nenni ekki að standa í veseni núna. Ég verð að reyna að finna einhverja aðra leið til þess að gera þetta.

    Það verður því einhver seinkun á myndunum... sorry!!!!

    Myndir frá San Francisco

    Jæja þessi síða er búin að vera officially dauð síðan í nóvember. Ég komst að því fyrir áramót að mér finnst alveg hundleiðinlegt að blogga plús það að alltaf þegar ég heyrði í einhverjum og var að segja fréttir fékk ég svarið "Já einmitt ég las það á blogginu".... Óþolandi því þá hef ég ekkert að segja við þá sem ég tala við þannig að ég ákvað eiginlega bara að hætta að blogga. Finnst miklu skemmtilegra að heyra í fólki og þá líka hefur fólk fyrir því að hafa samband við mann. (Einhverjir allavega).
    Hvað um það þá hef ég verið beðin um að setja inn myndir frá San Francisco svo ég ætla að gera það því ég nenni ekki að senda öllum.
    Ég er s.s. ekki byrjuð að blogga aftur ég er bara að setja inn myndir. Þannig að þeir sem vilja heyra fréttir af okkur hérna úr sólinni í Ithaca verða bara að hafa samband í gegnum email, msn eða skype.

    Hafið það gott þangað til næst,
    kveðja,
    Arna
    12월 9일

    Nýjar myndir

    Var að setja inn nokkrar nýjar myndir
    12월 6일

    Jæja hvernig væri að fara að skrifa eitthvað

    Já maður er búinn að vera alveg hrikalega lélegur að update-a síðuna hérna. Það er að verða mánuður síðan ég kom heim og hef bara ekkert skrifað síðan þá. Það er nú ekki mikið að segja, get ekki sagt ég hafi gert mikið hérna.
    Er samt búin að taka eitt próf. Iðnaðartölfræði 2 sem var heimapróf um helgina. Skilaði því í gær. Það gekk nú bara fínt en ég vil samt ekkert vera að segja of mikið það kemur bara í ljós.
    Ég fór á Typpatal með Hjördísi fyrir einhverju síðan, hún var svo elskuleg að bjóða mér með sér á frumsýninguna. Þetta var nú bara skemmtilegra en ég bjóst við alveg hægt að hlægja að þessu.
    Látum okkur sjá er ég búin að gera eitthvað fleira? Fór að djamma helgina eftir að ég kom. Byrjaði í stelpupartýi heima hjá Hjördísi, fór svo í eitthvað útgáfupartý hjá Senu þar sem allt "fína og fræga fólkið" var. Það fannst mér nú ekkert sérstakt, stoppaði samt aðeins til að drekka því það var frítt á barnum . Eftir það fór ég með Hjálmari á Nasa en þar voru Paparnir að spila og það var sko gaman. Enda enduðum við á allt of löngu djammi.... en nóg um það.
    Já ég fór líka á Mörgæsamyndina og hún er alveg frábær, mæli með henni.
    Núna á ég s.s. að vera að rifja upp sumarverkefnið mitt sem ég gerði fyrir Orkuveituna í sumar því ég er að fara að kynna það á morgun fyrir heimamönnum. Þannig að ætli það sé ekki best að fara að halda áfram að rifja upp því ég ætla að fara á æfingu á eftir. Við Þórey erum farnar að æfa saman og það er rosa fínt. Miklu skemmtilegra að fara með einhverjum heldur en einn. Við líka drögum hvor aðra áfram sem er ekki verra.
    Svo eru bara 5 dagar í að Sigurður komi heim .

    Jæja gott í bili, ætla svo að fara að setja inn nýjar myndir. Var að setja þær inn á tölvuna svo ég fer að skella þeim á netið.
    kveðja, Arna
    11월 13일

    Leiðrétting!!!

    Ég vil koma þeim misskilningi á framfæri að það var ekki ég sem ákvað nafnið á eftirréttinum "Desserten som er bedre en sex". Þetta kemur alfarið frá dönum svo ég geri ráð fyrir að danskir karlmenn séu svona lélegir í rúminu, þetta á a.m.k. ekki við um íslenska karlmenn og hvað þá minn mann.

    Yfir og út,
    Arna
    11월 9일

    Reykjavík here I come!

    Jæja nú fer að styttast í heimkomu mína. Það er líka alveg hrikalega langt síðan ég skrifaði síðast hérna. Það er svosem ekkert mikið búið að gerast en ég get svosem bablað eitthvað. Þar sem í þessari viku voru síðustu enskutímarnir mínir var ég beðin um að segja frá Íslandi. Þannig að ég að sjálfsögðu byrjaði á því að sýna þeim á korti hvar Ísland er staðsett og svo sagði ég þeim nokkrar staðreyndir um land og þjóð. Einnig ákvað ég að sýna þeim nokkrar myndir og kom það bara vel út. Þau voru sérstaklega hrifin af norðurljósunum eins og ber að skilja.
    Eins og flestir vita hef ég verið að mæta í cooking class og konan sem kennir er alveg ótrúlega almennileg. Hún heldur alltaf á hverju ári Thankgiving matarboð fyrir stelpurnar sem mæta í þessa tíma (við erum bara stelpur en ef það mæta strákar eru þeir að sjálfsögðu velkomnir líka) Allavega hún heldur þetta matarboð fyrir þær sem mæta í tímana og fjölskyldurnar þeirra. Hún heldur þetta alltaf í kringum Thanksgiving en þá verð ég farin og henni fannst svo leiðinlegt að ég skildi missa af þessu að hún vildi endilega bjóða mér samt heim til sín áður en ég færi. Þannig að síðasta sunnudag fórum við Sigurður í matarboð til þeirra hjóna. Þau voru svo almennileg að sækja okkur þar sem þau búa aðeins fyrir utan Ithaca og enginn strætó fer þangað. Þetta er samt bara svona 5-10 mínútna keyrsla svo þetta er ekki langt. Hvað um það við fórum þarna og það var rosa fínt. Þarna var sonur hennar líka sem er líklega á svipuðum aldri og við Sigurður samt aðeins eldri líklega. Dóttir hennar var þarna líka með tvíburana sína en rafmagnið hafði dottið af húsinu þeirra því það var pínu stormur, þrumur og eldingar seinnipartinn. Þá er mjög algengt að rafmagnið fari af í sumum hverfum hérna. Þannig að það var fullt af fólki og það sem merkilegast var að við borðuðum inni í stofu fyrir fram "football" Það eru víst allir áhugmenn í þessari fjölskyldu um amerískan fótbolta þannig að á sunnudögum er bökuð pizza og horft á fótboltann. Við urðum því bara partur af því. Þetta var rosa fínt bara svona casual kvöldverður á amerísku heimili það var mjög gaman að sjá hvernig amerískar fjölskyldur haga sér. Við fengum reyndar líka chicken wings og snakk og ídýfu áður en pizzan var tilbúin. Mér finnst mjög fyndið að borða snakk í forrétt og eftirrétt og aðalrétt en svona er þetta víst bara.
    Jæja nenni ekki meir. Enda komið gott þetta má ekki vera of langt því þá nennir enginn að lesa.
    Bæ í bili, Arna
    11월 4일

    Variety pack of beer

    Þar sem þetta er nú mitt síðasta föstudagskvöld í Ithaca þá ákváðum við Sigurður að fara út að borða í kvöld. Ítalski staðurinn varð fyrir valinu enda alveg hrikalega góður staður. Við nottla keyptum flösku af rauðvíni með steikunum og svo það var komið við í P&C og keyptur variety pack of Saranac beer. Þar höfum við 12 bjóra og engan eins. Hirkalega gaman að smakka.
    Nú var verið að bjóða okkur í afmælispartý svo við verðum að fara.
    Bæ í bili
    kveðja, Arna og Sigurður

    Mjólk og kleinuhringjamiðjur með glassúr mmmm..

    Já já kminn föstudagur enn og aftur og síðasta helgin hennar Örnu í Ithaca framundan. Ákvað að setja smá comment á síðuna meðan að ég úða í mig glassúrhúðuðum kleinuhringjamiðjum með mjólk og bíð eftir að Arna klári heimavinnuna sína í Iðnaðartölfræði 2. Nú vil ég taka það fram að glassúrhúðaðar kleinuhringjamiðjur eru ekki venjulegur miðdegismatur. Pabbi keypti þetta þegar við fórum að versla þegar þau komu fyrir tveimur vikum (fannst þetta voðalega forvitnilegt). Nú er sem sagt kominn föstudagur og þar sem þetta er svo gott sem það eina sem eftir er í ískápnum þá verður maður að láta sig hafa það. 
    Hvað er annars að frétta látum okkur sjá. Fór í atvinnu viðtal hjá HSBC á þriðjudaginn fyrir starf í NYC veit ekki hvernig það fór það verður bara að koma í ljós. Eðli málsins samkvæmt þá þurfti ég að vera í jakkafötum í viðtalinu. Til að redda því þá kom settið með ein jakkaföt fyrir mig að heiman þegar þau komu. Til að sonurinn liti nú sómasamlega út þá fór pabbi með fötin mín og eitthvað af sínum í hreinsun áður en þau komu, svo var þessu bara skellt í tösku og flogið til USA. Á mánudeginum áður en ég fór í viðtalið þá fékk ég svo þær frábæru fréttir að pabbi passaði ekki í buxurnar sem hann ætlaði í um morguninn. Hann var semsagt með mínar en ég með hans þetta reddaðist nú allt ég fór og keypti mér nýjar buxur. Ég vil nú samt ekki hugsa þá hugsun til enda ef þetta hefði ekki uppgvötast og ég á þriðjudags morguninn á leið í viðtalið hefði ekki passað í buxurnar og hefði þurft að fara eins og trúður í viðtalið.
     
    Nenni ekki meir
     
    Sigurður
    10월 30일

    Nýr linkur

    Þorsteinn þú varst eitthvað að kvarta yfir linkunum mínum þannig að ég er búin að setja nýjan link fyrir þig. Tékkaðu á honum.
    10월 28일

    Þorsteinn var að kvarta yfir því að ég skrifa aldrei neitt svo ég ákvað að setja eitthvað inn á þetta.

    Föstudagur, Metallica, bjór það er fín blanda er að spá í að hafa taka bara aðeins meira af henni í kvöld.
    Hvað er annars búið að gerast síðan ég bloggaði síðast? Hér er "loksins" farið að kólna og veðrið orðið eins og það á að vera eftir mjög heitt haust. Það var allavega frosið grasið í fyrsta skipti í morgun þegar ég fór í skólann og svo snjóaði hérna í nágrenninu í vikunni. Við erum farin að kynda kofann það er víst mjög dýrt þannig að maður hlakkar ekkert voðalega til að fá næsta reikning frá NYSEG (New York State Electrcity and Gas held ég) það er hætt við því að hann verði hár húsið er nefnilega álíka vel einangrað og skókassi.
    Arna er nú búin að skrifa mjög nákvæma lýsingu á heimsókn settsins hingað en ég verð nú samt að segja ykkur frá dýnunni sem ég keypti undir settið. Þannig er mál með vexti að það reyndist ómögulegt fyrir settið að fá hótelgistingu  á meðan að þau voru hérna vegan þess að það var eitthvað Cornell Trustee Council sömu helgi og öll hótel full. Þannig að ég skellti mér í K-Mart til að kaupa dýnu, ætlaði að kaupa einhverskonar vindsæng og pumpu. Eftir stutta leit fann ég nú einn rekka af svona dýnum en þetta voru sko engar smá dýnur þær stærstu voru stærri en svefnherbergið hérna og ekkert smá þykkar og allar útbúnar dælu ekkert pumpu vesen bara setja batterí og kveikja. Kaninn er svo latur það er búið að gera allt sjálfvirkt meira að segja vindsængur.
    Ég komst að því fyrir skömmu að ég klára prófin þann 9 des og þarf ekki að mæta aftur fyrr en tuttugasta og eitthvað janúar sem þýðir að ég er í 6 vikna jólafríi. Ég verð nú að segja að þetta sé mjög jákvæð þróun frá því í HÍ þegar maður var iðulega búinn eftir hádegi þann 21 des. Þetta er allavegana betra en jólafríið hjá ykkur sem eruð að vinna [Þorsteinn] það er bara ein helgi plús einn skitinn mánudagur og eitthvað svipað með áramótin.
    Djöfull er ég lélegur að blogga var að lesa þetta yfir og verð nú að segja að ég hef séð það betra. En ég nenni ekki meir í bili
     
    Until later Sigurður
     
    10월 26일

    Desserten som er bedre en sex

    Já ég var búin að gleyma því að Hafrún gaf mér grænt ljós á að setja uppskriftina að eplakökunni sem er betri en kynlíf hérna inn. Ef þið viljið hins vegar smakka eitthvað amerískt þá verðið þið bara að koma í heimsókn.
    Hérna er annars uppskriftin:

    3-5 epli

    150 gr súkkulaði

    125 gr hveiti

    125 gr sykur ( ég nota minni sykur)

    125 gr smjörlíki

    salthnetur

     

    Skræla eplin og skera þau í þunnar skífur. Raða þeim svo í eldfast mót. Saxa súkkulaðið og strá því yfir. Blanda hveiti, sykri og smjöri saman (hnoða í höndunum). Strá

    því svo yfir súkkulaðið og svo hneturnar koma efst. Gott að mylja þær aðeins smærra.

     

    Bakast við 180 C í 40-45 mín

     

    Borið fram með ís eða rjóma

    Heimsóknin

    Nú eru foreldrar Sigurðar farin. Þau voru hérna í 4 daga og það var alveg geggjað. Við fórum út að borða og í bíltúr um sveitir Bandaríkjanna með stoppi í vínsmökkun. Það var mjög gaman.
    Ævintýrið byrjaði á föstudaginn en þá vorum við Sigurður búin að elda handa þeim ameríska squash súpu. Þegar þau komu svo rétt eftir hádegi gáfum við þeim súpu og líkaði þeim rosa vel (eða svo sögðu þau a.m.k.) . Leiðin lá svo í K-mart til að kaupa sæng. Þar fékk ég líka mitt fyrsta kökukefli frá tengdó. Auðvitað varð ég þá að baka ameríska epla pie. Það var samt ekki gert strax. Eftir K-mart fórum við í Tops og höfum aldrei keypt eins mikið af mat sem er ennþá til í ískápnum og endist örugglega fram að jólum. Allavega við fórum svo út að borða á æðislegan franskan stað. Karlmennirnir fengu sér ameríska steik en við dömurnar fengum okkur önd. Allt saman var mjög gott og einnig rauðvínið sem var drukkið með. Þennan dag fengum við rosa gott veður. Það var sól og frekar heitt.
    Á laugardeginum var tekið á sund. Þ.e.a.s. rigningin var ótrúleg. Það var bara hellt úr fötu allan daginn og við löbbuðum um allan bæinn að leita að regnhlífum. Þegar loksins tókst að finna það reyndum við að finna okkur ferð til Niagra falls en það var því miður ekki í boði fyrir einn dag aðeins fyrir gistingu svo það kom ekki til greina. Þannig að það var leigður bíll. Við fórum svo aftur út að borða um kvöldið á ítalskan veitingastað sem var sko ekki síðri en sá franski. Hann var rosa flottur og ótrúlega góður. Þarna var lasagne borðað, kálfakjöt og fyllt pasta sem ég man ekki hvað heitir. Við Hafdís vorum góðar í því að finna okkur það sama á matseðlinum það gerðist a.m.k. tvö kvöld í röð að við pöntuðum það sama.
    Á sunnudaginn fórum við í bíltúr. Ætluðum að byrja á því að fara í Cortland Factorystore sem ég hélt að ætti að vera að hjúmangus veiðibúð en svo þegar við komum á staðinn var þetta bara lítill skúr m.v. það sem ég hafði ímyndað mér. Við komumst samt ekki inn því hún var lokuð. Við ákváðum þá að rúnta um sveitina og keyrðum í kringum Cayuga Lake sem er vatnið við Ithaca og 72 km að lengd eða eitthvað álíka. Það var mjög gaman að sjá sveitina og hún er líka rosalega misjöfn. Þarna voru alveg hús að hruni komin og líka ótrúlega flott hús þannig að það var allt þarna á milli. Við stoppuðum á vínekru og fórum í vínsmökkun sem var líka mjög gaman. Smökkuðum 10 tegundir af víni sem voru öll góð án gríns. Eftir það var farið heim og fengið sér vín og osta. Svo fór ég að gera epla pie og Hafdís gerði karrý fiskrétt sem var eins og allt mjög gott. Það var gott að fá fisk í fyrsta skipti í tvo mánuði. Þarna einmitt ákvað ég að gera þennan fiskrétt til að fara með í cooking class á morgun. Allavega þetta kvöld þá elduðum við heima og borðuðum fisk og drukkum hvítvín og svo var epla pie í eftirrétt.
    Mánudagurinn var svo verslunardagur. Þá fórum við í mollið og versluðum aðeins. Skiluðum bílnum og fórum aftur á ítalska staðinn því það var bara svo mikið girnilegt á matseðlinum sem okkur langaði að smakka.
    Þá var ferðin þeirra hingað senn á enda því þau fóru svo á þriðjudag eða í gær. Voru heldur óheppin með veður því það rigndi stanslaust og gerir enn. Það reyndar kom él í dag svo ég gæti nú trúað því að það styttist í snjóinn.
    Það fer nú líka að líða að heimför hjá mér því ég fer heim eftir rétt rúmlega tvær vikur. Þetta er alveg ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða. Svo eru bara að koma próf úff... ég er ekki alveg að meika það.
     
    Nú er bara allt fallið í sinn vanagang aftur þannig að ég hef ekkert meira að segja.
    Vil þakka Hafdísi og Steinari kærlega fyrir komuna og alveg æðislegan tíma. Vonandi verður bara betra veður næst.
    kv. Arna
    10월 15일

    Mér finnst rigningin góð... lalalala....

    Það er búið að rigna hérna stanslaust í viku sem er ekki nógu gott. Mér fannst skemmtilegra að hafa bara sól og hita. Því þegar það er rigning þá getur maður ekki verið eins fínn og þegar það er sól. Ég er t.d. ekkert búin að geta notað nýju skóna mína nema bara hérna inni. Og það er nú lítið hægt að labba hérna inni í 10 fermetrunum okkar :) En ég hef nokkrum sinnum fengið þá spurningu hvort ekki sé til mynd af skónum á netinu svo fyrir þá sem ekki hafa séð þá og hafa áhuga á því þá er linkur hér  
     
    Nú er innan við mánuður þangað til ég fer heim. Ég verð nú að viðurkenna það að ég hlakka pínu til. Þó svo að mig langi ekkert að fara héðan þá verður samt líka gaman að koma heim.
    Það er 15. okt í dag sem þýðir fyrsti í rjúpu og Sigurður skelfur alveg á beinunum hann langar svo að fara. Greyið strákurinn sem kemst ekki, er bara með eitthvað massa heimapróf sem hann er að gera.
    Annars er ég að fara í GRE á mánudaginn og er búin að vera að æfa mig fyrir það. Það er nú farið að ganga betur svo ég er hætt að vera alveg jafn hrikalega stressuð og ég var.
     
    Ég fór í Cooking class á fimmtudaginn og við bökuðum muffins eina ferðina enn eftir enn einni uppskriftinni. Þessi uppsrift á víst að vera basic uppskriftin og þetta deig er hægt að geyma í ísskáp í 6 vikur. Þá er alltaf hægt að taka það út og baka nýjar muffins á hverjum degi. Við gerðum líka súpu úr squashi en það er víst rosa hollt. Það var squash epli og laukur í henni og ekkert meir. Svo bara vatn og salt og pipar. Mjög einfalt. Þannig að við Sigurður fórum og keyptum tvö squash til að búa til svona súpu og svo er einnig hægt að setja þetta bara inn í ofn og baka svo við ætlum að prufa það líka.
    Þegar ég mætti spurði konan mig sem kennir okkur hvort ég hefði æft mig að gera pie crust eins og við gerðum í síðustu viku. Ég sagði henni að ég ætti ekki kökukefli svo ég hefði bara gert öðruvísi eplaköku. Henni fannst þetta nú ekki alveg nógu gott og vildi nú ekki að ég færi að kaupa mér kökukefli svo hún lánaði mér bara sitt, sagðist ekkert vera að fara að nota það. Þannig að nú er ég komin með kökukefli svo ég neyðist víst til þess að fara að æfa mig fyrir næsta tíma í næstu viku.
     
    Ég fékk komment hérna á síðuna um að gefa uppskriftina af eplakökunni sem er betri en kynlíf. Ég held ég spyrji Hafrúnu fyrst áður en ég set hana hérna bara til að vera alveg viss um að það sé í lagi.
     
    Ég held við Sigurður séum nú að verða kanar. Við fórum að versla í gær og keyptum penutbutter and jelly. Svo fengum við okkur þetta á brauð í hádeginu í dag og þetta er alveg hrikalega gott finnst mér.
     
    Ég held þetta sé orðið gott í bili,
    bestu kveðjur, Arna
     
     
    10월 8일

    Fáránlegt að þurfa alltaf að setja haus, mér dettur ekkert í hug...

    Ég fór í Cooking class á fimmtudaginn og lærði að baka ekta ameríska eplaköku. Það var nú ekki eins erfitt og ég bjóst við það var eiginlega bara drullu einfalt. Svo var kakan mjög góð. Ég er samt ekki búin að baka svona köku aftur því mig vantar kökukefli til að fletja út botninn og toppinn sem ameríkanar kalla crust. Þannig að ég er að baka Hafrúnar eplaköku núna. Hún sagði mér frá því að hafa farið með þessa köku í matarboð sem hún fór í með dönunum og danirnir kalla þennan eftirrétt "Deserten som er bedre en sex" svo maður verður nú að prufa að búa hann til.
    Það er nú farið að hausta hérna búið að rigna stanslaust í tvo daga og farið að kólna alveg ískyggilega. Rétt nær 10°C núna. Hvað um það maður bjóst nú við þessu fyrr en síðar.
    Ég fór og keypti mér skó í gær sem er nú kannski ekki frásögum færandi nema hvað það var grenjandi rigning og það tekur svona hálftíma að labba til að komast í búðina. Ég sem var búin að sjá skóna í síðustu viku og varla búin að sofa mig langaði svo mikið í þá ákvað að drífa mig í gær áður en þeir seldust upp og fór og keypti þá. Kom alveg hundblaut heim eftir að hafa labbað í klukkutíma í rigningunni... Það sem maður leggur á sig fyrir skó... Þeir eru samt geðveikir, gulllitaðir spariskór frá Steve Madden en eins og flestir vita sem komið hafa til Bandaríkjanna og farið að versla þá er Steve Madden með geðveika skó. Nú er bara að bíða eftir góða veðrinu og þá get ég farið að nota þá.
    Annars fórum við Sigurður aðeins í dag á Epla hátíð sem er niðri í bæ. Það er sko Epla season núna og allt morandi í eplum alls staðar. Þarna var verið að selja alls konar dót nottla epla þetta og epla hitt en svo var líka hægt að kaupa vín, skartgripi, töskur og myndir svo eitthvað sé nefnt. Þetta var fínt, hátíðin heldur áfram á morgun svo ef okkur langar að kíkja betur þá kannski förum við aftur á morgun. Við vorum nefninlega í seinni kantinum í dag það var alveg að fara að loka.
    Jæja ég hef ekkert meira að segja í bili svo ég bið að heilsa heim.
    Arna
    10월 5일

    Október who would have thought!

    Þetta er svo fljótt að líða að ég trúi því ekki að ég sé búin að vera hérna í meira en mánuð. Eftir nokkra daga get ég svo sagt að ég fer heim eftir mánuð. Mig sem langar ekkert heim strax. Ég er sko þvert á mót komin með nóg af sólinni. Ekki bara það ég er ekkert komin með nóg af þessu mér finnst þetta bara rétt að byrja. En það er nú alveg rúmur mánuður eftir svo ég ætla ekkert að vera að kvarta strax.
    Það er nú ekki mikið að frétta af mér. Ég fer bara í ensku tvisvar í viku og svo í síðustu viku byrjaði ég í "Cooking Class" en það er alltaf einu sinni í viku. Síðast lærði ég að baka amerískar muffins og á morgun læri ég að gera american pie. Ég hlakka bara til að læra það og svo er bara að reyna við það sjálfur, það kemur í ljós hvort það er erfitt eða ekki. Svo er ég að læra fyrir GRE það gengur svona allt í lagi er samt ekkert að nenna því því það er ekkert sérstaklega gaman. Svo er ég líka að sækja um Fulbright og reyna að velja mér skóla. Held ég endi á því að sækja um svona 5-6 hérna í USA og svo 2-3 í Svíþjóð.
    Ég fór í hádegismat til Elenu í dag. Hún gaf mér að smakka Kóreskan mat sem hún geymdi sérstaklega fyrir mig síðan í gærkvöldi. Þetta var rosa gott. Fékk einhverja súpu með núðlum og kjöti og grænmeti og miklum hvítlauk sem var ekkert verra. Svo fékk ég líka held ég kartöflur og lauk og pylsur sem var ekki í súpunni bara svona með. Svo gaf hún mér köku í eftirrétt. Maður er nottla svo kurteis að maður þiggur bara og leyfir ekki matnum. Þannig að ég var orðin hrikalega södd og svo var hún alltaf að spyrja hvort ég vildi ekki meiri köku en ég reyndar afþakkaði það, sagði henni að þetta væri rosa gott (sem þetta og var) en spurði hana hvort hún væri virkilega að reyna að gera mig feita með þessu öllu saman. Þetta minnir mann á það þegar maður var að koma til ömmu og afa þá fannst þeim maður alltaf borða svo lítið. Þau voru alltaf að bjóða manni meira og meira. Elena sagði líka að maðurinn hennar spurði hana stundum hvort hún væri að reyna að drepa hann með öllum þessum kökum og mat sem hún er að gefa honum.
    Þetta minnir mig á það að ég ætla að búa til túnfisksalat handa Sigurði mínum (hann er sko ennþá í skólanum) svo hann geti tekið með sér í nesti á morgun í skólann. Það er langur dagur hjá honum og nákvæmlega ekkert til í ískápnum nema tvö pítubrauð, hvítlauksbrauð og bjór. Með þessu áframhaldi þá endar með því að hann tekur með sér hvítlauksbrauð og bjór í nesti. En ég ætla að gera túnfisksalat og setja á pítu það ætti að vera í lagi svo förum við að versla á föstudaginn.
    Þannig að ég er farin í bili
    Arna
    9월 30일

    Aftur komin helgi úff

    Jæja komin önnur helgi vá þetta líður hratt maður. Þetta er búin að vera strembin vika mikið af skilum og hópavinnu en eins og alltaf (oftast allavega) reddast þetta einhven vegin fyrir horn.  Ég var kominn með helvíti mikla heysátu á höfuðið og fór því í dag eftir skóla í rannsóknarleiðangur með það að markmiði að finna klippistofu. Var helvíti léttur á fæti í góðu veðri á föstudegi og skellti mér niður eina götu þar sem áttu að vera einhverjar rakarastofur, góðar meira að segja samkvæmt mínum heimildum. Fann fljótlega eina og ákvað að láta bara slag standa og skellti mér inn. Ég hlammaði mér þarna í einn stólinn hjá klippikonunni og hún spurði hvernig klippingu ég vildi, meðan ég lýsti því fyrir henni kinkaði hún bara kolli  svona eins og hún væri með hugan við allt annað og hófst svo handa. Guð minn góður ég hef aldrei séð annað eins hún bar sig að við þetta eins og maður ímyndar sér að Picasso  máli málverk þ.e. sletta hér önnur þar. Hún skipti um skæri og klippur sitt á hvað og klippti og rakaði að því er virtist algjörlega random. Ég var orðin dauðskelkaður um að hún ræki skærin í hausin á mér í einhverri af þessum sveiflum og var því bara dauðfegin þegar hún spurði hvernig mér litist á þetta, þannig að ég stundi bara upp að þetta væri fínt þó að ég hafi ALDREI verið verr klipptur á ævinni. Ég hraðaði mér bara heim og lét Örnu laga það allra versta. Best að hætta þessu og fara að gera eitthvað af viti.
     
    Yfir og út frá USA
     
    9월 24일

    Nei þetta var nú kannski aðeins of stutt

    Ég ætlaði ekki að nenna þessu en nú er Arna farin að horfa á Sex in the City einu sinni enn!! Hún er örugglega búin að sjá þennan þátt fimm sex sinnum. Annars er ég bara nokkuð brattur eiturhress eiginlega djöfulli mikið að gera en maður er nú orðin vanur því eftir þriggja ára æfingabúðir í HÍ hjá Sigga Brynjólfs og félögum. Hér er maður í minnihluta í ýmsum skilningi þegar maður mætir í skólann fyrir það fyrsta er ég íslenskur og í öðrulagi er ég hvítur. Hér eru eiginlega allir frá Kína, Indlandi og guð má vita hvaðan og það er nú sossum bara gaman af því. Þessu liði finnst það voðalega merkilegt að ég sé frá Íslandi og í 90% tilfella fæ ég spurninguna hvaða tungumál talið þið á Íslandi er það enska eða? Svo kemur snilldar "kommentið" Iceland is green but Greenland is icy. Það er eins og þetta sé kennt í skólum um allan heim. Að lokum kemur svo But where is Iceland actually? Ég var að spjalla við strák um daginn og við vorum eitthvað að skoða Google-Earth (snilldar forrit mæli með því) og hann benti á Írland og hélt að það væri Ísland. Ég ætti nú kannski ekki að vera að segja mikið gæti örugglega ekki bent á helminginn af þessum löndum sem þetta fólk er frá ef mér væri sýnt kort.
    Við höfum hingað til farið að versla í Tops sem er svona standard stórmarkaður en það er bara búið að vera á stefnuskránni í töluverðan tíma að fara í Wegmans sem er STÓRmarkaður. Jæja við létum loksins verða af þvi í dag og skelltum okkur. Það er nú sossum ekki frásögum færandi en þeir eru með bjórherbergi heill kælir af bara bjór engnn ostur, egg eða mjólk. Annars var þetta nú aðeins of stórt fyrir mig var alveg búinn á líkama og sál eftir að hafa endasenst á milli ganga í rúman klukkutíma. Var að leita að jalapeno fann gang sem var merktur Italian and Mexican eitthvað, leitaði í honum fann ekkert, spurði stafsmann  hún sendi mig í sama ganginn en ég fann ekkert. Á leiðinni til baka fann ég "Are you looking for something" tölvu (þeir eru með tölvu til að hjálpa manni að finna eitthvað sem maður finnur ekki. Hvað er það) og enn sendi tölvan mig í sama ganginn þannig að nú sendi ég Örnu að leita en það skilaði heldur engum árangri þannig að ég gafst upp.
    Jæja það er best að fara að hætta þessu ef það eru einhverjar stafsetningavillur þá skrifa ég þær á bjórinn úr herberginu sem er nú bara nokkuð góður.

    Þá er komið að því fyrsta færslan frá mér á bloggið !!!

    Þeir sem hafa eitthvað fylgst með þessu bloggi hafa kannski tekið eftir því að ég hef ekki verið neitt sérstaklega iðinn við að skrifa á þetta. En nú er kominn tími til að brjóta ísinn.
    9월 17일

    1 mánuður liðinn

    Vá ég trúi því ekki að við séum búin að vera hérna í mánuð. Þetta er svo fljótt að líða að það er ótrúlegt. Ég verð komin heim áður en ég veit af og það verða komin jól áður en ég veit af.
    Ég hef nú engar svakalegar fréttir að færa við erum ekki búin að gera neitt sérstakt nema bara fara í skólann og læra. Ég er að skipta um enskutíma því eins og ég sagði síðast þá var þetta allt of létt fyrir mig. Ég var engan veginn með þolinmæði í að vera þarna mér leið eins og ég væri bara komin í grunnskóla aftur. Ég veit ekkert hvernig þessi kúrs er kannski er hann ekkert erfiðari en við skulum sjá ég hætti þá bara í þessu. Ég er svo líka byrjuð í ensku í Cornell en það var fínt það er bara tvisvar í viku svo kannski verður það bara nóg fyrir mig. Ég ætla aðeins að sjá til.
    Ég var eitthvað að velta því fyrir mér að kíkja í mollið en ég er samt eiginlega ekki að nenna því. Ætla samt út að hlaupa á eftir er búin að fara alveg tvisvar sinnum svo nú á að taka sér tak.
    Ég hef ekkert að segja svo ég ætla ekkert að vera eitthvað að röfla hérna og segi þetta gott í bili.
     
    9월 11일

    Helgin

    Þá er fjórða helgin okkar hérna í Ithaca að verða búin. Ég hef nú engar svakalegar fréttir að færa nema hvað okkur var boðið í innflutningspartý til íslensku partýljónanna Ingvars og Matta. Gillið átti að byrja kl. 10 punktlig en við erum að sjálfsögðu íslendingar svo við mættum um 10:30. Ameríkanar mæta sko alltaf á slaginu ef ekki fyrr þannig að við vorum mætt frekar seint. Tekið var á móti okkur með freyðivíni og íslenska fánanum og svo vorum við tekin rúnt um húsið þar sem útskýrt var fyrir okkur vín úrvalið í hverju herbergi fyrir sig. Það var nefninlega allt fljótandi í víni þarna. Ameríkanar mæta nefninlega ekki með kassa af bjór handa sjálfum sér heldur þeir sem halda partýið bjóða upp á alla drykki. Ef þig langar að vera rosalega kurteis þá kannski mætiru með nokkra bjóra til að gefa þeim sem heldur partýið. Allavegana þarna var nóg af víni og fullt af fólki.
    Aðalpunkturinn sögunnar er svo sá að strákarnir eru búnir að koma upp með "Tequila in the Icelandic way". Þeir eru búnir að sannfæra alla sem hitta þá um það að íslendigar taki Tequila nefninlega öðruvísi en flestar aðrar þjóðir. Það er gert þannig að saltið er tekið í nefið svo tequila skotið og svo er sítrónan kreist beint upp í augað. Til þess að fólk trúi þessu svo þá þurfa þeir að sjálfsögðu að sýna þetta þannig að þeir byrja og svo fylgja hinir á eftir. Fólk er virkilega að trúa þessu og gerir þetta. Þannig að allt partýið er með nefrennsli og sviða í auganu það sem eftir er kvöldsins. Þeir þurfa sko að líða fyrir þetta strákarnir því þeir taka alveg svona 10 skot á kvöldi í partýi til þess að fá sem flesta til þess að gera þetta. Við Sigurður létum samt ekki plata okkur enda vorum við ekkert að djamma neitt að ráði. Fórum heim einhvern tímann eftir miðnætti og þá voru sumir orðnir það slappir eftir (ca. 8 tequila staup og svipað magn af bjór) að þeir gátu sig hvergi hreyft stóðu bara á sama staðnum og ákváðu að vera ekkert að færa sig því það gæti endað illa.
    Ég verð nú að segja það að þetta var ansi skemmtileg sjón að sjá allt fólkið taka tequilað svona á the Icelandic way. Maður hugsar bara með sér: "Það sem fólk lætur plata sig út í".